Ég hef elskað hunda frá því ég man eftir mér. Þegar móðir mín var með mig eins árs gamla í sveit sem ráðskona, gerði ég allt eins og hundurinn í sveitinni og átti mjög erfitt með að skilja að ég gat ekki borðað úr sama dalli og hann og lét oft ekki segjast.

Ísland var síður en svo hundavænt á mínum yngri árum, svo sama hvað ég bað um hund, þá kom það ekki til greina, þrátt fyrir að allir í fjölskyldunni þráðu að eignast hann. En þegar ég sjálf byggði upp mína fjölskyldu og við fluttum þar sem við höfðum garð, þá fékk ég mér blendingstíkina hana TANJU, en hún var blanda af langhundi og labrador, afskaplega lítil og nett og gaf okkur ómælda ánægju í þau ár sem að hún lifði.

Svo féll ég fyrir SILKY-TERRIERNUM og þá byrjaði ég að fara í hundana af einhverri alvöru, þ.e.a.s. ekkert komst annað að en að spá og spegulera í hundategundum, gæðum, ættbókum ofl. því tengdu. Ég var semsagt kolfallin og ákvað að láta gamlan draum rætast.

Þegar ég var unglingur bjó ég hjá móðursystur minni í Florida í einhverja mánuði og þar sá ég og kynntist svolítið hundategund sem ég hef alltaf þráð að eignast síðan og það er Basset hound. Ég var svo heppin að kynnast Marit Jensen í Noregi sem hefur hjálpað mér síðan, en hún er virtur ræktandi í sínu landi. Ég fór til Noregs sumarið 2001 og kom heim reynslunni ríkari með fullt af væntingum og breyttum viðhorfum hvað ræktun varðar með “Turid” með mér sem ég fékk frá Heidi Line Olsen. Bobass Yum-Yum kom til landsins stuttu seinna, kom sá og sigraði bæði sýningar og hjörtu þeirra sem kynntust honum.

Ég byrjaði að rækta þessa tegund og gekk vel, en erfitt er fyrir mig að hafa þessa tegund í dag. Nú eru Sveinn og Dísa tekin við þeirri ræktun, en það eru hjón í Mosfellsbæ sem eiga Paradise Passion Elenor, en áfram munum við fylgja tegundinni eftir og vera í samstarfi með áframhaldandi ræktun.

Yorkhire terrier kom inn í líf okkar í byrjun árs 2007 þegar Fanneyjar “Nikka” kom á heimilið og eftir það hún Swedetops “Goldie” sem Kristín Erla treysti mér fyrir.

Dóttir mín hún Dúa hefur verið í þessu öllu með mér frá unga aldri og eigum við þessa ræktun saman í dag. Við erum mjög samhentar í þessu fjölskyldusporti mæðgurnar og gefa dýrin okkur mikið. Dúa hefur alltaf verið mjög hrifin af Shih Tzu hundum og áhugasöm um ræktun á þeirri tegund, Hún fékk sinn fyrsta Shih Tzu hund frá Noregi 2006, hann “Hermann” ræktanda hans er Göril Olsen eigandi Danilos kennel og á hún miklar þakkir skilið fyrir það traust sem hún hefur sýnt okkur og viljum við mæðgur þakka henni fyrir frábæra samstarf.

Allir okkar hundar taka þátt í heimilisbrag eins og tíðkast hjá fjölskyldum. Ég hef verið það lánsöm að fá góða fósturforeldra fyrir þá hunda sem ég vil halda í ræktun minni, en ég vil ekki hafa of marga heima, allir þurfa athygli og næga ástúð. Við komst að því að til þess að geta fylgt okkar markmiðum eftir hvað ræktun varðar, þurfum við að eiga marga hunda.

En þetta var okkar svar við því, “að leyfa fleirum að njóta dýranna okkar” Við fundum yndislegar fjölskyldur sem gefa þeim gott líf, þar sem þeir eru númer 1, 2 og 3 á því heimili sem þeir dvelja. Frábært samstarf og góður margra ára vinskapur hefur komið í kjölfarið og sýnir okkur að dýrin okkar geta haft það mjög gott hjá öðrum og í mörgum tilfellum mun betra en ef þau væru inn á heimili þar sem margir þurfa umönnun og athygli.

Með bestu kveðju,
Dottý, Dúa og hundarnir

Þú ert löngun þín.

Hin dýpsta löngun þín er vilji þinn.

Vilji þinn skapar verk þín.

Verk þín skapa örlög þín.

Úr: Lögmálin sjö um velgengni, eftir Deepak Chopra.


____________________________________________________________________________________________________________________________________
 Elísabet Kristjánsdóttir - Símanúmer / Phone number: +354 5670944 & +354 6636342 - paradisepassion.dogs@gmail.com
Jónína Guðný Elísabetardóttir - Símanúmer /Phone number: +354 5177392 & +354 8220944 - dua1983@gmail.com 

Website: Anja Björg Kristinsdóttir